Bretar taka út af reikningum

Breskir sparifjáreigendur taka fjármagn sitt út af Icesave reikningum Landsbankans.
Breskir sparifjáreigendur taka fjármagn sitt út af Icesave reikningum Landsbankans. mbl.is/Golli

Breska blaðið Sunday Times seg­ir, að bresk­ir spari­fjár­eig­end­ur taki nú inni­stæður sín­ar út úr reikn­ing­um ís­lenskra banka af ótta við að ís­lenska banka­kerfið kunni að hrynja.

Seg­ir blaðið að bresk­ir spari­fjár­eig­end­ur hafi síðustu daga í stór­um stíl flutt fé af Ices­a­ve reikn­ing­um, sem Lands­bank­inn býður í Bretlandi, og Kaupt­hing Edge reikn­ing­um, sem Kaupþing býður, inn á reikn­inga breskra banka.

Spari­reikn­ing­ar ís­lensku bank­anna í Bretlandi hafa notið tölu­verðra vin­sælda enda er þar boðin góð ávöxt­un. Eru inn­lánsvext­irn­ir 6,76% á Ices­a­ve reikn­ing­um og 6,86% á Edge.

Frétt Sunday Times

mbl.is

Bloggað um frétt­ina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK