Stjórn Icelandic Group hefur samþykkt að leggja tillögu fyrir hluthafa á aðalfundi félagsins þann 18. apríl nk. þess efnis að hluthafar samþykki að félaginu verði heimilt að taka víkjandi skuldabréfalán til 4 ára samanlagt að höfuðstólsfjárhæð í íslenskum krónum er samsvarar 41 milljón evra á þeim tíma sem skuldabréfalánið er veitt, með 23% föstum ársvöxtum, er veiti kröfuhafa rétt til þess að breyta kröfu samkvæmt skuldabréfaláninu á hendur félaginu í hluti í því á genginu 1,00.
Miðað við að framangreind fjárhæð væri 5 milljarðar króna þá hefði þetta í för með sér að félagið gæfi út nýja hluti að nafnverði allt að 11.444.332.050 eftir fjögur ár. Til stendur að bjóða hluthöfum félagsins og fagfjárfestum að kaupa framangreind skuldabréf í lokuðu útboði. Andvirði framangreindra skuldabréfa yrði varið til frekari styrkingar á innviðum félagsins og lækkunar á hlutfalli skammtímafjármögnunar í heildarfjármögnun félagsins, að því er segir í tilkynningu til Kauphallar Íslands.
Stjórn Icelandic Group hf. samþykkti ennfremur að falla frá áður samþykktri tillögu sinni um að leggja til við aðalfund aukningu á hlutafé um allt að jafnvirði 30.000.000 evrur.