Lítil viðskipti hafa verið á gjaldeyrismarkaði frá opnun markaða klukkan 9:15 í morgun. Krónan hefur styrkst um 0,6% en gengisvísitalan stendur í 149,95 stigum en lokagildi hennar var 150,85 stig í gær. Bandaríkjadalur er 74,77 krónur, evran er 116,37 krónur og pundið 147,90 krónur.