Greining Glitnis spáir því að vísitala neysluverðs (VNV) hækki um 1,8% milli mars og apríl. Gangi spáin eftir mun ársverðbólga aukast úr 8,7% í 10,0%. Kemur fram í spánni að verðbólguvaldar eru nokkrir að þessu sinni.
Gengislækkun krónunnar síðastliðnar vikur vegur þyngst og má búast við töluverðri innfluttri verðbólgu næstu vikur vegna hennar. Áframhaldandi verðhækkun matvöru mun hafa áhrif auk hækkunar hrávöruverðs á erlendum mörkuðum, samkvæmt spá Greiningar Glitnis.
„Aðrar innfluttar vörur eins og bílar hækka einnig töluvert í verði þessar vikurnar sem og verð á eldsneyti. Innlendur uppsafnaður kostnaðarþrýstingur er einnig að koma hratt upp á yfirborðið, meðal annars vegna mikillar launahækkunar á síðasta ári. Minni samkeppni frá innfluttum varningi auðveldar verðhækkun á innlendum vörum um þessar mundir, enda mikill skriður á verðbreytingum og verðvitund almennings því ekki eins næm og hún gæti verið við aðstæður meiri verðstöðugleika."
Segir í spánni að gengi krónunnar hefur lækkað mikið að undanförnu eða um 20% frá áramótum og um ríflega 6% frá því að síðasta verðbólguspá Glitnis var unnin í mars.
„Mikil
gengislækkun kemur vissulega fram í innfluttri verðbólgu, en
misjafnlega hratt þó. Eldsneytisverð er hvað næmast fyrir gengi
krónunnar en matvöruverð fylgir gengisbreytingum einnig nokkuð vel
eftir. Aðrar innfluttar vörur eins og fatnaður, húsgögn, heimilistæki
og bílar fylgja gengisbreytingum almennt séð ekki eins vel eftir. Hins
vegar, þegar gengi krónunnar breytist jafn mikið á jafn skömmum tíma og
raunin hefur verið á árinu, þá koma áhrif gengisbreytingar fyrr fram í
verði á innfluttum vörum og gengisháðri þjónustu. Það virðist einmitt
vera raunin nú og við búumst við að verð á þessum vörum muni hækka
hratt þessar vikurnar," samkvæmt verðbólguspá Glitnis.