Verkfræðistofur sameinaðar

Mannvit verkfræðistofa
Mannvit verkfræðistofa

Verkfræðistofurnar VGK-Hönnun hf. og Rafhönnun hf. hafa verið sameinaðar undir nafninu Mannvit hf. Með sameiningunni verður til stærsta verkfræðistofa landsins með um 360 starfsmenn, samkvæmt tilkynningu.

Grunn að hinu nýja félagi leggja þrjár rótgrónar verkfræðistofur sem allar voru stofnaðar á sjöunda áratug síðustu aldar; Hönnun hf., Verkfræðistofa Guðmundar og Kristjáns hf. og Rafhönnun hf.

Forstjóri hins nýja félags er Eyjólfur Árni Rafnsson en aðstoðarforstjórar þeir Runólfur Maack, erlend starfsemi og Skapti Valsson, innlend starfsemi.

Mannvit á hlut í nokkrum fyrirtækjum í tengdri starfsemi, þar á meðal HRV Engineering ehf., Geysi Green Energy ehf., Vatnaskilum ehf., Loftmyndum ehf. og Skipaskoðun Íslands ehf.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK