Einn af vorboðunum í norsku viðskiptalífi eru að sögn Nettavisen mannabreytingar hjá fjármálafyrirtækjunum sem lokka til sín starfsmenn keppinautanna með gylliboðum. Að sögn blaðsins hefur Kaupþing í Noregi orðið verst fyrir barðinu á þessu nú en þrír kunnir greinendur hafa yfirgefið bankann og farið til Handelsbanken og First Securities.