Bandarísku flugfélögin Delta og Northwest munu jafnvel tilkynna um sameiningu á þriðjudag. Með því yrði til stærsta flugfélag heims. Það sem helst stendur í vegi fyrir sameiningu snýr að samningum við flugmenn félaganna þannig að ekki er víst að samningar náist um sameiningu. Greint er frá þessu á vef Wall Street Journal.
Nýverið var greint frá því að 30 þúsund starfsmönnum Delta Airlines hafi verið boðinn starfslokasamningur en með því stefnir félagið á að fækka starfsmönnum sínum um tvö þúsund. Ástæðan er sögð vera aukinn eldsneytiskostnaður og ekki um eiginlegar uppsagnir að ræða.