Verðbólga árið 2007 jókst í 5% vegna aukinnar spennu á fasteignamarkaði. Gengislækkun krónunnar frá miðju síðast ári ásamt eftirspurnarþrýstingi og viðvarandi spennu á vinnumarkaði hefur leitt til þess að verðbólga er áætluð að vera um 8,3% að meðaltali í ár, samkvæmt nýrri þjóðhagsspá fjármálaráðuneytisins.
Í forsendum þjóðhagsspárinnar er gert ráð fyrir að fasteignaverð lækki að raungildi um 15% fram til 2010. Nokkur verðbólguþrýstingur er talinn verða enn til staðar árið 2009 en að verðbólga minnki í 3,9%. Spáð er að verðbólga verði komin á 2,5% verðbólgumarkmið Seðlabanka Íslands á seinni hluta ársins 2009 og verði að meðaltali 2,5% árið 2010.
Spá 2,3% samdrætti í þjóðarútgjöldum
Samkvæmt þjóðhagsspá fjármálaráðuneytisins er áætlað að þjóðarútgjöld dragist saman um 2,3% í ár vegna samdráttar í einkaneyslu og íbúðar- og atvinnuvegafjárfestingu, þrátt fyrir að uppbygging álvers í Helguvík hefjist á árinu.
Spáð er að hagvöxtur verði 0,5% á árinu m.a. vegna tæplega 70% aukningar í útflutningi áls og samdráttar innflutnings.
Samdráttur í hagvexti
Mjög aukinn samdráttur í einkaneyslu og íbúðarbyggingum leiðir til þess að verg landsframleiðsla dregst saman um 0,7% árið 2009 þrátt fyrir aukna fjárfestingu atvinnuvega. Árið 2010 er gert ráð fyrir að vöxtur einkaneyslu og fjármunamyndunar ásamt áframhaldandi bata í utanríkisviðskiptum knýi hagvöxtinn sem verði 0,8% það ár.
Viðskiptahalli er áætlaður að hafa verið 15,5% af landsframleiðslu árið 2007 og spáð að hann dragist áfram saman á næstu árum og verða 13,2% af landsframleiðslu árið 2008 og 7,7% árið 2009 og 6,6% árið 2010.
3,8% atvinnuleysi á næsta ári
Áætlað er að spenna á vinnumarkaði hafi náð hámarki í fyrra og að slaki taki að myndast í ár og verði nokkur á næstu árum. Atvinnuleysi, sem var að meðaltali 1,0% af vinnuafli árið 2007 verður 1,9% í ár. Árin 2009 og 2010 er spáð að minnkandi innlend eftirspurn leiði til þess að atvinnuleysi verði 3,8% af vinnuafli árið 2009 og 3,5% árið 2010.
Í framreikningum fyrir árin 2011-2013 er reiknað með 0,7% hagvexti að meðaltali; að verðbólga verði nálægt verðbólgumarkmiði og að viðskiptahallinn nálgist 2,5% af landsframleiðslu í lok tímabilsins.