Björgvin G. Sigurðsson, viðskiptaráðherra, opnaði í dag formlega netverslunina www.orkastore.com sem er í eigu Íslendinganna og hjónanna Finns Guðmundssonar og Angelu Maríu Roldos.
Fyrirtæki þeirra hjóna, Orka International Ltd., hefur starfað sem innkaupaskrifstofa allt frá árinu 1999 bæði í Hong Kong og í Zhongshan borg í Kína. Fyrirtækið sérhæfir sig í byggingarvörum, innréttingum og húsgögnum.
Björgvin er í opinberri heimsókn í Kína.