Í því árferði sem nú er í viðskiptalífinu eru það lánardrottnar sem ráða ferðinni en ekki hluthafar, sagði Björgólfur Thor Björgólfsson, stjórnarformaður Straums, í viðtali nú í hádeginu.
„Eins og staðan er núna er þetta ekki spurning um hvað mann langar að gera heldur hvað maður getur gert,“ sagði Björgólfur ennfremur um efnahagsástandið. Hann var í viðtali á Stöð 2 í hádeginu.
Hann benti á að lánardrottnar íslensku viðskiptabankanna væru ekki íslenskir heldur erlendir.
Þá spáði Björgólfur því, að kreppan í efnahagslífinu myndi standa út árið erlendis, en eitthvað lengur hérlendis því að hennar hefði orðið vart hér síðar en í útlöndum.