Verð á hráolíu komst í 114,50 dali tunnan á markaði í New York í morgun og hefur aldrei verið hærra. Er ástæðan einkum lækkandi gengi Bandaríkjadals gagnvart evru. Brent Norðursjávarolía hækkaði einnig á markaði í Lundúnum og var 112,35 dalir í morgun, sem einnig er met.