Verð á hráolíu á markaði í New York fór í 115,54 dali í morgun og hefur aldrei vereið hærra. Ástæður verðhækkunarinnar eru lækkandi gengi dals gagnvart evru og upplýsingar um að birgðastaða eldsneytis í Bandaríkjunum sé ekki eins og góð og talið var.
Verð hækkaði einnig á Brent Norðursjávarolíu á markaði í Lundúnum og fór í 113,38 dali.