Hlutabréf hækkuðu í verði í Kauphöll Íslands í upphafi dags. Úrvalsvísitalan hafði hækkað um 0,58% og var 5254 skömmu eftir að viðskipti hófust. Bréf Flögu höfðu hækkað um 5,48% og einnig höfðu bréf fjármálastofnana farið upp á við. Gengi krónunnar hafði hins vegar lækkað á sama tíma um 1% og gengisvísitalan var 154 stig um klukkan 10:30.