Breska viðskiptablaðið Financial Times segir í dag, að svo virðist sem aðgerðir Íslendinga til að verjast árásum vogunarsjóða á íslensku krónuna, hluta- og skuldabréf séu að bera árangur. Skuldatryggingaálag bankanna og ríkisins hafi lækkað snarplega það sem af er apríl og það bendi til þess að vogunarsjóðirnir séu að leggja á flótta.