Alþjóðlega matsfyrirtækið Standard & Poors hefur lækkað langtíma lánshæfieinkunn Glitnis úr A- BBB+ með neikvæðum horfum. Skammtímaeinkunn bankans er hins vegar óbreytt, A-2. Glitnir er eini bankinn á Íslandi sem metinn er af S&P.
Í tilkynningu frá S&P segir, að lækkun einkunnarinnar endurspegli aukinn þrýsting á íslenska hagkerfinu, sem gæti haft þau áhrif að virði innlends eignasafns Glitnis lækki. Þá sé vaxandi óvissa um hagnaðarmöguleika bankans vegna umróts á fjármálamarkaði og erfiðleika við að nálgast alþjóðlegt fjármagn. Það gæti jafnframt dregið úr möguleikum Glitnis til frekari vaxtar.
Matsfyrirtækið lækkaði í síðustu viku lánshæfisreinkunnir íslenska ríkisins, Íbúðalánasjóðs og Landsvirkjunar.