Danska blaðið Børsen segir að Björgólfur Thor Björgólfsson halli sér nú aftur í stólnum og bíði eftir því að verð á fjárfestingarfélögum og fasteignum lækki. Björgólfur á hlut í nokkrum dönskum fasteignafélögum. Í viðtali við blaðið segir Björgólfur að hann reikni ekki með miklum fasteignakaupum á þessu ári heldur bíði hann eftir því að bankar neyðist til að selja fyrir hönd viðskiptavina sinna.
Björgólfur segir að verðið muni lækka á næstu mánuðum og hann muni því ekki hreyfa sig fyrir jól. „Það er fínt - ég hef nógan tíma," hefur blaðið eftir honum.