Bakkavör innkallar ídýfur vegna salmonellu

Bakkavör
Bakkavör

Bakkavör Group hefur innkallað tvær tegundir af hummus-ídýfum  í varúðarskyni í Bretlandi, eftir að salmonella fannst í sýni við reglubundið
innra eftirlit. Engar vörur frá Bakkavör eru seldar á Íslandi.

„Mikil áhersla er lögð á öryggis- og gæðamál hjá félaginu og átti Bakkavör
frumkvæðið að innkölluninni, en hún er umfangslítil. Um er að ræða einangrað tilvik sem mun ekki hafa áhrif á framleiðslu félagsins á hummus-ídýfum né öðrum vörum sem félagið framleiðir fyrir viðkomandi viðskiptavini," samkvæmt  tilkynningu frá Bakkavör.

Bakkavör Group er stærsti framleiðandi ferskra tilbúinna matvæla í Bretlandi. Félagið framleiðir yfir 6.000 vörur á hverjum degi, er með starfsemi í 9 löndum og 20.000 starfsmenn.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK