Fjallað er um ástand efnahagsmála hér á landi í nýjasta tölublaði tímaritsins Economist. Segir þar að tilraunir Seðlabankans til að hemja verðbólgu hafi lítinn árangur borið, heldur hafi mikill vaxtamunur við útlönd, sterk króna og ódýrt erlent fjármagn myndað vítahring hárrar verðbólgu, viðskiptahalla og hárra vaxta. Nú súpi Íslendingar seyðið af þessari hegðun.