Krónan styrktist um 0,5% í dag, samkvæmt upplýsingum frá Glitni. Í upphafi viðskipta var gengisvísitalan 147,85 en í lok dags var hún 147,10. Velta á millibankamarkaði nam 22,1 milljörðum króna. Gengi dollarans er 73,13 krónur, gengi pundsins er 145,60 krónur og gengi evrunnar 114,35 krónur.