Hlutabréf lækkuðu í verði í Kauphöll Íslands í dag. Úrvalsvísitalan lækkaði um 1,57% og er 5215 stig. Bréf Century Aluminium hækkuðu um 3,67%, bréf Atlantic Petroleum hækkuðu um 1,43% og Atorku um 0,14%, bréf Bréf Bakkavarar Group lækkuðu um 8,11% en félagið birti uppgjör í gærkvöldi. Þá lækkuðu bréf Icelandair um 4,13%.