Alls voru 20 þúsund manns nýskráðir atvinnulausir í Bandaríkjunum í apríl sem eru mun færri heldur en spáð hafði verið. Samkvæmt spá sérfræðinga var gert ráð fyrir því að störfum myndi fækka um 70 þúsund í mánuðinum. Er þetta fjórði mánuðurinn í röð þar sem atvinnulausum fjölgar í Bandaríkjunum. Atvinnuleysi mælist nú 5% í Bandaríkjunum.
Wall Street tók þessum fregnum vel og hækkuðu helstu hlutabréfavísitölur um tæpt 1% á fyrsta klukkutímanum frá opnun markaða.