Hluthafafundur í FL Group haldinn 9. maí

Stjórn FL Group hefur samþykkt að boða til hluthafafundar 9. maí þar sem og leggja fyrir hluthafa tillögu um skráningu félagsins úr kauphöll OMX Nordic Exchange á Íslandi.

Í tilkynningu, sem send var í nótt, segir að stjórnin telji að afskráning félagsins þjóni hagsmunum félagsins og hluthöfum þess best og veita stjórnendum færi á að leggja frekari áherslu á langtímamarkmið. Síðustu mánuði hafi farið fram gagnger endurskoðun á fjárfestingastefnu og rekstri FL Group en félagið leggi nú áherslu á stöðugar langtímafjárfestingar og fjárfestingar í óskráðum félögum. Afskráning muni veita framkvæmdastjórn félagsins sveigjanleika til að horfa til lengri tíma í uppbyggingu félagsins og minnka kostnað og umsvif sem fylgi því að vera skráð félag.

Fram kemur í tilkynningunni, að FL Group muni að fengnu samþykki hluthafafundar mun FL Group gera hluthöfum tilboð um að kaupa hluti þeirra í FL Group og greiða fyrir þá með hlutum í Glitni. Um 83% hluthafa félagins hafi þegar afsalað sér rétti til tilboðsins og verði því áfram hluthafar í FL Group. Afskráningarferli

Samþykki 2/3 hluthafa þarf til þess að afskráningarferlið geti hafist. Að fengnu samþykki hluthafafundar þann 9. maí mun hluthöfum standa til boða að halda hlutum sínum í FL Group, sem verður óskráð félag, eða selja hluti sína og fá greitt fyrir með hlutum í Glitni. Kaupverð hluta í FL Group í tilboði til hluthafa verður 6,68 á hlut sem var meðalgengi FL Group í aprílmánuði 2008 og gengi á hlutum í Glitni verður 17,05 á hlut sem var lokagengi Glitnis þann 30. apríl 2008. Skiptihlutfallið í tilboði til hluthafa verður því 0,3918 hlutir í Glitni banka fyrir hvern hlut í FL Group.

FL Group hefur gert samkomulag við Jötunn Holding ehf. um rétt FL Group til kaupa á hlutum Jötuns í Glitni sem nota skal í viðskiptunum. Þessi viðskipti hafa því engin áhrif á 31,97% eignarhlut FL Group í Glitni eða stöðu Glitnis sem einni af kjarnafjárfestingum FL Group, að því er segir í tilkynningunni.

Meðal stærstu fjárfestinga FL Group eru 32% hlutur í Glitni banka, 99%hlutur í Tryggingamiðstöðinni og 39,8% hlutur í Landic Property.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK