Gengi krónunnar hefur styrkst um 0,37% það sem af er degi og stendur gengisvísitalan í 148,85 stigum. Lokagildi hennar var 150,40 stig á miðvikudag. Veltan á millibankamarkaði í morgun er 3,7 milljarðar samkvæmt upplýsingum frá Glitni. Gengi Bandaríkjadals er 74,95 krónur, evran 116 krónur og pundið 148,90 krónur.