Krónan veiktist um 0,42% í dag, samkvæmt upplýsingum frá Glitni. Í upphafi viðskipta var gengisvísitalan 153,10 en í lok dags var hún 153,65. Velta á millibankamarkaði nam 32,5 milljörðum króna. Gengi dollarans er 76,67 krónur, pundsins 151,37 og evrunnar 119,18.