Olíuverð hélst áfram yfir 124 dölum tunnan í rafrænum viðskiptum á markaði í New York í nótt. Hækkaði verð á hráolíu til afhendingar í júní um 78 sent frá lokaverði í gærkvöldi og er nú 124,47 dalir tunnan. Hæst fór verðið í 124,73 dali tunnan í nótt. Í Lundúnum hækkaði verð á Brent Norðursjávarolíu um 89 sent og er 123,73 dalir tunnan.