Eins og komið hefur fram rannsakaði Fjármálaeftirlitið hvort að aðilar hafi á skipulegan hátt dreift neikvæðum orðrómi um íslenska fjármálakerfið eða íslensku bankana, í því skyni að hagnast á því. Fjármálaeftirlitið bíður nú upplýsinga erlendis frá, þær upplýsingar munu leiða í ljós hvert framhaldið verður, samkvæmt upplýsingum frá Fjármálaeftirlitinu.