Niðurstöður efnahagsreiknings sjávarútvegsfyrirtækja sýna að heildareignir sjávarútvegs í árslok 2006 voru 387 milljarðar króna, heildarskuldir 290 milljarðar og eigið fé því 97 milljarðar. Þetta kemur fram í nýju hefti Hagstofu Íslands, Sjávarútvegur, þar sem birtar eru
niðurstöður athugana Hagstofunnar um fiskveiðar og fiskvinnslu fyrir
árið 2005-2006.
Þar kemur m.a. fram að afkoma botnfiskveiða og -vinnslu
batnaði frá árinu 2005 til ársins 2006. Hreinn hagnaður botnfiskveiða,
reiknaður samkvæmt árgreiðsluaðferð, hækkaði úr 9½% af tekjum í 18½% en
hagnaður botnfiskvinnslu hækkaði úr 3½% af tekjum í 9½%.
Afkoma
botnfiskveiða og -vinnslu í heild breyttist lítið á milli áranna 2004
og 2005. Hreinn hagnaður botnfiskveiða, reiknaður samkvæmt
árgreiðsluaðferð, hækkaði úr 7½% af tekjum í 9½% en hagnaður
botnfiskvinnslu lækkaði úr 4½% af tekjum í 3½%.
Heildareignir sjávarútvegs í árslok 2005 voru 354 milljarðar króna, heildarskuldir 250 milljarðar og eigið fé því 104 milljarðar.