Alþjóðlega matsfyrirtækið Moody's hefur lækkað lánshæfiseinkunn íslenskra ríkisskuldabréfa í Aa1 úr Aaa og hefur einnig lækkað landseinkunn innlána í erlendri mynt í Aa1 úr Aaa.
Aðrar einkunnir Íslands eru staðfestar Aaa, þar á meðal landsmat fyrir skuldbindingar í erlendri mynt, landsmat fyrir bankainnstæður í íslenskum krónum og landsmat fyrir verðbréf í íslenskum krónum. Útlit allra einkunanna er stöðugt, að sögn Moody's.
Fyrirtækið segir, að lækkun lánshæfiseinkunnarinnar endurspegli hugsanlega erfiðleika, sem íslenska ríkið gæti lent í við að útvega erlendan gjaldmiðil ef svo ólíklega færi að íslenska bankakerfið lenti í ófyrirséðum erfiðleikum.