Krónan styrktist um 0,26% skv. upplýsingum frá Glitni. Gengisvísitalan var 147,2 stig þegar viðskipti hófust en var 146,25 stig þegar viðskiptum lauk í dag. Velta á millibankamarkaði nam 40 milljörðum kr. Gengi Bandaríkjadals er nú 72,45 kr., evran er 113,82 kr. og pundið kostar nú 143,44 kr.