Greiningardeild Landsbankans segir, að áhrifa hárra stýrivaxta muni brátt gæta í verðlagi. Hækkandi fjármagnskostnaður sé farinn að dempa eftirspurn og verulega hafi dregið úr umsvifum á fasteignamarkaði. Þá lækki húsnæðisverð á sama tíma og veikingu krónunnar virðist lokið að sinni. Forsendur eru því að skapast fyrir því að nokkuð hratt dragi úr verðbólgu á næstu mánuðum.
Landsbankinn segir, að búast megi við að verðbólga mælist um 10½% frá upphafi til loka þessa árs en stór hluti þeirrar hækkunar sé þegar kominn fram. Á næstu 12 mánuðum á greiningardeild bankans von á því að verðlag hækki um 4½%.