Fjárfest í nýsköpun fyrir 4,6 milljarða

Í upphafi ársfundar Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins í morgun, tilkynnti Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra, að náðst hefði samkomulag um stofnun Frumtaks, samlagssjóðs stóru bankanna þriggja, stærstu lífeyrissjóða landsins og Nýsköpunarsjóðs. Frumtak mun hafa a.m.k. 4,6 milljarða króna á næstu árum til fjárfestinga í nýsköpunar- og sprotafyrirtækjum sem þykja vænleg til vaxtar og útrásar.

Sérstakt 1,5 milljarða króna framlag til Nýsköpunarsjóðs af tekjum ríkissjóðs vegna sölu Símans er stofninn í Frumtaki. Stóru bankarnir , Glitnir, Kaupþing banki og Landsbanki leggja fram 1,5 milljarð króna og sex af stærstu lífeyrissjóðum landsins leggja fram 1,6 milljarð króna. Sú tala gæti hækkað þar sem áskrift er ekki lokið, að því er segir í tilkynningu.

„Markmið Frumtaks er að byggja upp öflug fyrirtæki sem geta verið leiðandi á sínu sviði og um leið skilað góðri ávöxtun til fjárfesta. Frumtaki er ætlað að fjárfesta í fyrirtækjum sem eru komin af klakstigi og er áskilið að fyrir liggi ítarlegar viðskiptaáætlanir. Frumtaki er heimilt að fjárfesta erlendis að því marki sem nauðsynlegt er vegna útrásar eða markaðssóknar íslenskra fyrirtækja á erlenda markaði, ekki síst þegar möguleiki er á sameiningu eða samruna við fyrirtæki í eigu Frumtaks," samkvæmt tilkynningu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK