Halli á vöruskiptum 32 milljarðar

mbl.is

Fyrstu fjóra mánuði ársins voru fluttar út vörur fyrir 111,4 milljarða króna en inn fyrir 143,5 milljarða króna fob (156,3 milljarða króna cif). Halli var á vöruskiptunum við útlönd, reiknað á fob verðmæti, sem nam 32 milljörðum en á sama tíma árið áður voru þau óhagstæð um 25,4 milljarða á sama gengi. Vöruskiptajöfnuðurinn var því 6,6 milljörðum króna óhagstæðari en á sama tíma árið áður.

Í aprílmánuði voru fluttar út vörur fyrir 33,4 milljarða króna og inn fyrir 40,7 milljarða króna fob (44,5 milljarða króna cif). Vöruskiptin í apríl, reiknuð á fob verðmæti, voru því óhagstæð um 7,3 milljarða króna. Í apríl 2007 voru vöruskiptin óhagstæð um 14,1 milljarð króna á sama gengi, samkvæmt frétt Hagstofu Íslands.

Útflutningur dregst saman um 4,3%

Fyrstu fjóra mánuði ársins 2008 var verðmæti vöruútflutnings 5,0 milljörðum eða 4,3% minna á föstu gengi en á sama tíma árið áður. Útfluttar iðnaðarvörur voru nær helmingur alls útflutnings og var verðmæti þeirra 22,4% meira en árið áður. Sjávarafurðir voru 43% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 7,1% minna en á sama tíma árið áður.  Mestur samdráttur varð í útflutningi skipa og flugvéla og sjávarafurða, aðallega frystra flaka, en á móti kom aukning í útflutningi á áli.

Innflutningur eykst um 1,2%

Fyrstu fjóra mánuði ársins 2008 var verðmæti vöruinnflutnings 1,6 milljörðum eða 1,2% meira á föstu gengi en á sama tíma árið áður. Mest aukning varð í innflutningi á hrá- og rekstrarvörum og eldsneyti og smurolíum en á móti kom samdráttur í innflutningi á flugvélum og fjárfestingavöru.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK