Krónan veiktist um 0,95% í dag, samkvæmt upplýsingum frá Glitni. Í upphafi viðskipta var gengisvísitalan 153,05, en í lok dags var hún 154,5. Velta á millibankamarkaði nam 48,4 milljörðum króna. Gengi dollarans er 77,55 krónur, pundsins 151,55 og evrunnar 119,80.