Krónan styrktist í dag um 1,5%. Gengisvísitala krónunnar var 164,80 við opnun í morgun en er nú 162,40. Velta á millibankamarkaði var tæpir 30 milljarðar. Gengi Bandaríkjadollars er 81,38 krónur, gengi breska pundsins 160,56 krónur og gengi evru er 126,08 krónur samkvæmt upplýsingum frá Kaupþingi banka.