Gengi krónunnar hefur lækkað mikið það sem af er degi. Nemur lækkunin nú 3,58% og stendur gengisvísitalan í 169,15 stigum en fór hæst í 170,20 stig. Við upphaf viðskipta var vísitalan 163,30 stig. Gengi Bandaríkjadals er 84,80 krónur, pundið er 166,20 krónur og evran er 131,20 krónur.