Íslenskir neytendur eru svartsýnir á stöðu og horfur í efnahags- og atvinnulífi um þessar mundir. Væntingavísitala Gallup, sem birt var í morgun, mælist 67,9 stig í júní og hefur lækkað um 17,9% frá fyrri mánuði. Um er að ræða fjórða mánuðinn í röð sem vísitalan mælist undir 100 stigum sem þýðir að fleiri neytendur séu svartsýnir en bjartsýnir.
Væntingar neytenda hafa dregist hratt saman síðan í fyrrahaust og er
væntingavísitalan nú 53% lægri en á sama tíma fyrir ári síðan.
Vísitalan hefur aðeins tvisvar mælst lægri en nú en það var í síðustu
efnahagslægð sem hagkerfið gekk í gegnum, eða í október og nóvember
árið 2001. Allar undirvísitölur væntingavísitölunnar lækka nú á milli
mánaða, að því er segir í Morgunkorni Glitnis.
Vísitalan
fyrir stórkaup lækkar nú um 11% á milli ársfjórðunga. Hefur vísitalan
lækkað jafnt og þétt frá síðasta sumri, þegar lausafjárkrísan braust
út. Undirvísitölurnar fyrir bifreiðakaup, íbúðakaup og utanlandsferðir
lækka allar og eru nú í eða nálægt sögulega lágmarki. Sér í lagi er
athyglisvert að þeim sem telja mjög eða frekar líklegt að þeir kaupi
bíl næsta hálfa árið fækkar nærri um helming frá síðustu mælingu í
mars. Neytendur eru því mun ólíklegri nú en til að ráðast í kaup á
bifreiðum, húsnæði eða utanlandsferðum, að því er fram kemur í Morgunkorni Glitnis.