Krónan styrktist um 1,95% í dag, samkvæmt upplýsingum frá Glitni. Í upphafi viðskipta var gengisvísitalan 162,50, en í lok dags var hún 159,35. Velta á millibankamarkaði nam 35,7 milljörðum króna. Gengi dollarans er 79 krónur, pundsins 157,30 og evrunnar 124,35.