Verðmæti álútflutnings 17,7 milljarðar í maí

Alls var verðmæti álútflutnings 17,7 milljarðar króna í maímánuði
Alls var verðmæti álútflutnings 17,7 milljarðar króna í maímánuði mbl.is/Steinunn

Stóraukin framleiðslugeta áls endurspeglast í auknum útflutningstekjum. Alls var verðmæti álútflutnings 17,7 milljarðar króna í maímánuði og er það annar mánuður þessa árs þar sem álið skilar meiri gjaldeyristekjum en sjávarútvegurinn. Reiknað á föstu gengi tvöfaldaðist verðmæti útflutts áls milli ára í maí, samkvæmt Morgunkorni Glitnis.

„ Miðað við framleiðslugetu og heimsmarkaðsverð á áli er líklegt að verðmæti álútflutnings það sem eftir lifir árs verði á líkum nótum og í maí. Útlit er fyrir að verð á áli haldist hátt, m.a. vegna hækkandi orkuverðs. Þar sem álvinnsla hér á landi er í raun leið okkar til að flytja út óbeint okkar endurnýjanlegu orku má segja að höggið af háu innflutningsverði eldsneytis sé þannig mildað af áhrifum hás orkuverðs á útflutningstekjur af áli," að því er segir í Morgunkorni Greiningar Glitnis.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK