Miklar sviptingar hafa orðið á heimsmarkaði með olíu síðasta klukkutímann eða svo, en samkvæmt Bloomberg hefur verð á Brent norðursjávarolíu lækkð um 3,60% frá upphafi dags.
Um hádegi hafði verðið aðeins lækkað um 0,66% og er því um mjög mikla lækkun að ræða á ekki lengri tíma. Verð á Brent olíu er nú um 133,60 dalir á fatið.