Heimsmarkaðsverð á hráolíu hefur lækkað um rúmlega 1% það sem af er degi. Fatið kostar nú 133,16 dali sem er 1,44 dala lækkun frá því markaðir lokuðu í gær.
Forvitnilegt verður að sjá hvað gerist þegar markaðir opna vestanhafs en undanfarna daga hefur mestur hluti lækkana orðið síðdegis.