Krónan hefur veikst um 1,32% í morgun samkvæmt upplýsingum frá Glitni. Gengisvísitala krónunnar er nú 160,70 stig en velta á gjaldeyrismarkaði nemur 11 milljörðum. Gengi Bandaríkjadals er 79,27 krónur, sterlingspunds 158,24 krónur og evru 125,80 krónur.