Glitnir tekur yfir MEST

Höfuðstöðvar Steypustöðvarinnar MEST.
Höfuðstöðvar Steypustöðvarinnar MEST. mbl.is/Frikki

Nýtt félag, Steypustöðin MEST hefur tekið yfir rekstur steypustöðva og helluframleiðslu MEST í Hafnafirði, Reykjavík og á Selfossi. Þá mun hið nýstofnaða félag einnig taka yfir verslun með múrvörur MEST.

Glitnir, sem var í hópi stærstu kröfuhafa MEST er eigandi nýja félagsins og er það markmið bankans að finna nýja eigendur að félaginu á næstu mánuðum. 

Í tilkynningu frá félaginu segir að  eigendur, stjórnendur og lánardrottnar MEST hafi að undanförnu unnið að endurskipulagningu rekstrar MEST með það að markmiði að tryggja áframhaldandi starfsemi sem og að tryggja hag starfsmanna fyrirtækisins. Var niðurstaðan sú að stofna nýtt félag, Steypustöðina Mest og munu höfuðstöðvar félagsins verða að Malarhöfða 10 í Reykjavík.

Segir í tilkynningu að markmið aðgerðanna sé að tryggja áframhaldandi rekstur sem og atvinnu yfir 100 starfsmanna fyrirtækisins en talið er að . góður rekstrargrundvöllur sé er fyrir steypustöð og hellusteypu og því muni nýja félagið því byggja á sterkum grunni.

Nýr forstjóri Steypustöðvarinnar Mest er Hannes Sigurgeirsson. Tekið er fram í tilkynningunni að hann hafi áralanga reynslu af slíkum rekstri og hafi m.a. verið um árabil forstjóri Steinsteypunnar og Steypustöðvarinnar. Stjórnarformaður félagsins er Jón Steingrímsson, viðskiptafræðingur og rekstrarráðgjafi.

Segir að framtíð annarra rekstrareininga fyrirtækisins sé í höndum eigenda MEST. Stjórnarformaður þess félags er Pétur Guðmundsson.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK