Guðmundur A. Birgisson, hefur selt nær allan hlut sinn í HB Granda, eða rúmlega 2,7 milljónir hluta á genginu 10,5 og fær þá tæpar 29 milljónir króna fyrir söluna.
Í tilkynningu frá HB Granda til kauphallar, kemur fram að Guðmundur, sem er varamaður í stjórn félagsins haldi eftir 30.000 hlutum.