Krónan styrktist um 0,16% í dag og stóð gengisvísitalan í 160,4 stigum við lok dags, í hæsta gildi dagsins eftir að hafa dansað undir og yfir 160 stigin í dag.
Gengi bandaríkjadals í lok dags var 79,65 krónur, sterlingspundsins 159,4 krónur og evrunnar 125,15.
Velta á gjaldeyrismarkaði nam um 35,4 milljörðum samkvæmt upplýsingum frá gjaldeyrismarkaði Glitnis.