Verðbólgan mælist nú 13,6%

Vísi­tala neyslu­verðs miðuð við verðlag í júlí  hækkaði um 0,94% frá fyrra mánuði. Grein­ing­ar­deild­ir bank­anna höfðu spáð hækk­un á bil­inu 0,5-1,1%.

Vísi­tala neyslu­verðs án hús­næðis hækkaði um 0,87%. Síðastliðna tólf mánuði hef­ur vísi­tal­an hækkað um 13,6% en vísi­tala neyslu­verðs án hús­næðis um 13,2%.  Und­an­farna þrjá mánuði hef­ur vísi­tala neyslu­verðs hækkað um 3,2% sem jafn­gild­ir 13,6% verðbólgu á ári (13,5% fyr­ir vísi­töl­una án hús­næðis). 

Hag­stof­an reikn­ar út vísi­töl­una og seg­ir að sumar­út­söl­ur séu í full­um gangi. Verð á föt­um og skóm lækkaði um 11,6% (vísi­tölu­áhrif -0,53%).  Á móti hækkaði verð á nýj­um bíl­um um 5,3% (0,38%) en á bens­íni og díselol­íu um 2,0% (0,10%). Verð á mat og drykkjar­vör­um hækkaði um 2,2% (0,27%) og verð á hús­gögn­um og heim­ils­búnaði hækkaði um 6,4% (0,18%).

Kostnaður vegna eig­in hús­næðis hækkaði um 1,1% (0,19%). Þar af voru áhrif af hækk­un markaðsverðs 0,11% en áhrif af hækk­un raun­vaxta voru 0,08%.

mbl.is

Bloggað um frétt­ina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK