Kaupþing með 70% eignarhlut í SPM?

Ákveðið hefur verið af stjórn Sparisjóðs Mýrasýslu, leggja fram tillögu við fund stofnfjáreigenda, þess efnis að stofnfé sjóðsins verði aukið um 2 milljarða króna.

Hefur Kaupþing banki skuldbundið sig til þess að skrá sig fyrir 1.750 milljónum og aðrir fjárfestar fyrir 250 milljónum. Einnig hefur Kaupþing skuldbundið sig til þess finna kaupanda að 8,73% hlut sparisjóðsins í Icebank hf.

Segir í tilkynningu frá sparisjóðnum að stjórnin hafi jafnframt ákveðið að leggja til að Borgarbyggð falli frá rétti sínum til þess að skrá sig fyrir nýju stofnfé, en haldi þess í stað 20% hlut sínum sem stofnfjáreigandi eftir aukninguna.

Stofnfjáraukningin er háð samþykki lánveitenda Sparisjóðs Mýrasýslu, Fjármálaeftirlitsins og Samkeppniseftirlitsins. Mun hlutur Kaupþings eftir stofnfjáraukninguna verða 70%, hlutur Borgarbyggðar 20% og annarra fjárfesta 10%.

Er áætlað er að fundur stofnfjáreigenda verði  föstudaginn 15. ágúst.

Gísli Kjartansson, sparisjóðsstjóri segir í tilkynningunni:

„Rekstur SPM hefur verið erfiður á fyrri hluta ársins vegna slæms árferðis á fjármálamörkuðum.  Með nýju stofnfé verður fjárhagslegur grundvöllur sjóðsins traustur og hann mun þjóna viðskiptavinum sínum vel hér eftir sem hingað til,”

„Stjórn sjóðsins fagnar því að fjárhagslegur grundvöllur sjóðsins sé  treystur og að Kaupþing hafi ákveðið að taka þátt í stofnfjáraukningunni. Stjórnin væntir góðs af samstarfinu við bankann,” segir Sigurður Már Einarsson, formaður stjórnar sparisjóðsins.




mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Loka