Verð á hráolíu fór niður í 118 dali á fatið þegar dró úr áhyggjum af hitabeltisstorminum Edouard í suðurhluta Bandaríkjanna, og fjárfestar seldu hrávörueignir sínar vegna væntinga um samdrátt í efnahagslífinu. Olíuverð hefur nú lækkað um nær 30 dali síðan 147,27 metið var sett þann 11.júlí, eða um 20%.