Ellefu manns hafa verið ákærðir fyrir að stela meira en 41 milljónum greiðslukortanúmera í Bandaríkjunum. Svo virðist sem um eitt stærsta hakkaramál og persónaupplýsingastuld allra tíma sé að ræða.
Þjófarnir lögðu áherslu á stórar smásölukeðju á landsvísu á borð við Barnes & Noble og T. J. Maxx, að því er fram kemur á vef International Herald Tribune. Sakborningarnir eru frá Bandaríkjunum, Eistlandi, Úkraínu, Kína og Hvíta-Rússlandi. Höfuðpaurinn er maður að nafni Albert Gonzalez og er frá Miami, Flórída.
Gonzalez og félagar skönnuðu þráðlaus net fyrirtækjanna og leituðu að öryggisholum. Þannig komu þeir upp forritum sem náðu í kreditkorta- og PIN-númer sem voru í notkun hverju sinni og í greiðslukortanúmer sem voru geymd í greiðslukerfum fyrirtækjanna. Númerin voru svo seld á vefnum og segulrendur með þeim sett á kort til að geta tekið þúsundir dala út úr hraðbönkum.
Ekki hefur fengist uppgefið hversu háum fjárhæðum var stolið, en samkvæmt upplýsingum IHT þrýsta yfirvöld á að Gonzalez muni þurfa að bæta 1,6 milljónir dala, 127 milljónir króna, ásamt öðrum eignum.