Tap á reksti deCODE eykst

Höfuðstöðvar deCODE.
Höfuðstöðvar deCODE. mbl.is/Július

Tap deCODE, móðurfélags Íslenskrar erfðagreiningar, nam 18,4 milljónum dala á öðrum fjórðungi ársins samanborið við 16,2 milljónir dala á sama tímabili á síðasta ári. Á fyrri hluta ársins nemur tap félagsins 45 milljónum dala, jafnvirði 3,55 milljörðum króna á núverandi gengi, en var 38,9 milljónir dala á fyrri hluta síðasta árs.

Tap á reglulegri starfsemi nam 13,5 milljónum dala á öðrum ársfjórðungi samanborið við 22,9 milljónir dala á sama tímabili í fyrra.

Tekjur á ársfjórðungnum námu 15 milljónum dala samanborið við 7,6 milljónir dala á öðrum fjórðungi síðasta árs. Á fyrri hluta ársins nema tekjur félagsins 30 milljónum dala samanborið við 16,2 milljónir í fyrra.   

Handbært fé nam 49,4 milljónum dala um mitt árið samanborið við 94,1 milljón dala um síðustu áramót.

Gengi bréfa deCODE hækkaði um 5,19% á Nasdaq markaðnum í dag og er skráð 1,42 dalir. 

Tilkynning deCODE 

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK