Íbúðalánasjóður hefur í kjölfar útboðs á íbúðabréfum ákveðið að útlánavextir sjóðsins lækki. Verða útlánavextir íbúðalána með uppgreiðsluákvæði 4,9% en þeir voru 5,05%. Þá verða vextir íbúðalána án uppgreiðsluákvæðis 5,4% en þeir voru 5,55%. Hin nýja vaxtaákvörðun tekur gildi í dag.
Vaxtaákvörðun Íbúðalánasjóðs byggist á ávöxtunarkröfu í útboði íbúðabréfa sem haldið var á föstudag ásamt vegnum fjármagnskostnaði uppgreiðslna ÍLS-veðbréfa. Vegnir vextir í útboðinu og uppgreiddra ÍLS-bréfa eru 4,43%.
Vaxtaálag vegna rekstrar er 0,25%, vegna útlánaáhættu 0,20% og vegna uppgreiðsluáhættu 0,5%.